Pastelpáskar

Pastel er heldur betur ráðandi núna…Sem er bara skemmtilegt, á meðan hlutir verða ekki of væmnir…

 

Annars er langt síðan síðast, ég fór til Íslands – Flórída – Og svo aftur stödd á Íslandi…Ætli þessi færla sé ekki vel “inspired by Florida” haha…Þar er maður á pastelskýji alla daga!

Ég 1 verkefni í hendurnar þegar ég var á Flóró en það var að búa til póster fyrir nokkrar ungar stúlkur úr Háskólanum sem héldu styrktartónleika fyrir Kraft (Félag fyrir fólk sem hefur verið krabbamein og aðstandendur þess)…


Jájá, eintóm pastelgleði í þessu!

Hunangsmjúkur koss

Þessa mynd tók ég af mér og Karítas Björk þegar hún var mánaðargömul…



Ég væri afar þakklát ef þú kæri lesandi (sem kommentar aldrei?) tækir þér nokkrar sekúndur í að kjósa mína mynd í facebook-leik Burt Bees. Það þarf ekki að “like-a” síðuna sjálfa, bara nóg að kjósa – EITT KLIKK!

♦KJÓSA HÉR KJÓSA HÉR KJÓSA HÉR♦

13 dagar í Ísland – 20 dagar í Flórída..Það væri nú gott markmið að búa til fallegan póster fyrir ykkur á þessum 13 dögum..Svo kem ég pottþétt tilbaka úr þessu ferðalagi full af innblæstri og tek kannski “10 pósterar á 10 dögum” einsog ég gerði hérna um árið. Nema að núna myndi ég kannski frekar gera færri og vandaðri á fleiri dögum.

Eru ekki annars allir hressir ?


Solé


Vá vá vá…Þessi hjól…VÁ…



Hjólin kosta $350 sem gerir um 43þús íslenskar krónur. Mér finnst það svosum enginn dauði miðað við hvað hjól kosta almennt mikið í dag. EN, hinsvegar er bara 1 gír og það þoli ég ekki og örugglega ekki neinn á Íslandi í brekkum.

Þið getið skoðað fleiri valmöguleika ♦HÉR


 

Tími fyrir gjafir

Mars og apríl nálgast óðfluga og það þýðir náttúrlega bara eitt = FERMINGAR!

Þar sem að ég mun koma heim til Íslands þann 5. mars og dvelja í viku, og svo aftur frá 29. mars til 10. apríl, þá er kjörið tækifæri að næla sér í hálsmen, hvort sem það er fermingargjöf eða einhvað annað tilefni.  Á þessu tímabili munu öll hvítu hálsmenin vera á tilboði og kosta 3.500 kr!

Í dag fékk ég loksins sent svört box sem hálsmenin koma nú í – Ég tók að sjálfsögðu upp símann og tók myndir (sem fóru BEINT á instagram)…



Ég læt líka fylgja með myndirnar af öllum menunum sem eru til í augnablikinu. Ég vildi óska þess að ég gæti sett inn 100x myndir af  því sem mig langar að hanna og búa til. En allt stórt hlýtur að byrja rólega, er það ekki?



Endilega hafið samband við mig á: foafeikirofa.com ef þið viljið panta fyrirfram eða hafið einhverjar spurningar!


Sól sól skín á mig..

Ég hef ákveðið að sumarið byrji hjá mér þann 12. mars, því þá held ég til Flórída…Mig vantar sól, sundlaugarbakka, verslunarleiðangra og bara allt “USA” í lífið mitt. Óhh ég er svo spennt. Ég var að fletta í gegnum We♥It um daginn og voru svona myndir allsráðandi…


 


Mér finnst samt ógurlega leiðinlegt að vera ekki með sítt hár í sumar. En ég er að safna, á hverjum degi – Tek inn þaratöflur meirarsegja! Kannski að það hjálpi dóttur minni að fá hár á sinn haus, en það gengur nú ansi hægt…Sílið…


Instagram

Tölvan mín er OUT í augnablikinu en hleðslutækið endanlega gaf sig. Sem er svekkjandi þar sem að ég á að vera að vinna í logo-i fyrir viðskiptavin, búa til fermingarkort fyrir tengdamóður mína og vinna í verkefni fyrir hönnunarkeppni!

Ég get ekki sagt annað en að ég hlakki til að eignast nýja MacBook Pro í næsta mánuði..

Síminn verður að duga í nokkra daga og því tilvalið að setja inn nokkrar instagram myndir. Ég ELSKA instagram og er verulega óþolandi mamma með símann í andlitinu á dóttur minni allann daginn.


20120211-234000.jpg

20120211-234032.jpg

20120211-234122.jpg

20120211-234142.jpg

20120211-234206.jpg

20120211-234235.jpg

20120211-234321.jpg

20120211-234357.jpg

20120211-234420.jpg

20120211-234529.jpg

20120211-234559.jpg

20120211-234627.jpg

20120211-234647.jpg

20120211-234702.jpg

20120211-234722.jpg

20120211-234746.jpg

20120211-234812.jpg

20120211-234841.jpg

20120211-234859.jpg

20120211-234913.jpg

20120211-234934.jpg

20120211-234941.jpg

20120211-234949.jpg

20120211-234959.jpg

20120211-235011.jpg

20120211-235019.jpg


•Fylgdu mér á instagram: aslaug2•

sumarstuttbuxurnar

♦ Runway Dreamz ♦


Ég ætla ekki að fara að kaupa mér stuttbuxur á 20 þús EN hinsvegar ætla ég að reyna á það að betrumbæta nokkrar svona sjálf!



Fatalitir / klór ♦ pinnar ♦ Efni…Þetta getur ekki verið svo flókið, eða hvað?

Það er mjög sniðugt að kíkja á ebay og leita meðal annars af “studs” og “fabric diy” – Hræódýrt og væri jafnvel sniðugt fyrir nokkrar vinkonur að kaupa saman og hafa föndurkvöld.


M.I.A.

Ég uppgötvaði M.I.A. þegar ég bjó í M.I.A. (Miami). Ég hlustaði vægast sagt mikið á “Kala” sem var hennar 2 plata. Hinsvegar fór hún einhverja aðra átt með þriðju plötuna og að mínu mati í vitlausa átt.

Nýlega gaf hún út “Bad Girls” sem verður klárlega stór “hittari” á næstu vikum – Sem og vonandi restin af plötunni…


Í nótt var svo Superbowl og var Madonna með hálfleikinn í sínum höndum. Þar mætti engin önnur en mín dama, M.I.A. og gaf fólki puttann – LOL…



Svona fyrir utan það að vera brjálæðislega mikill töffari, þá er hún verulega falleg líka…


Que bella

F37 Bella letrið eftir Rick Banks er með því fallegra sem ég hef séð lengi. Fyrir þá sem vita ekki, þá er ég með mikla letur-þráhyggju og get eytt tímum saman að leita, skoða og pæla…


Ég sem sagt væri til í að eyða pening í að kaupa þetta letur í staðin fyrir föt. Mörgum finnst það eflaust mjög undarlegt, en ég býst við að þeir sem eru  grafískir hönnuðir (eða hafa áhuga) skilja mig 120%.


Valentínusardagurinn

Er einhver sem heldur upp á Valentínusardaginn? Ég væri til í að skipta út bónda-og konudegi og halda upp á Valentínusardaginn frekar. það er eitthvað svo súper sætt við hann. Kannski út af því að allt er bleikt og rautt og ég fæ náttúrulega ekki nóg af bleikum. Nei nei, mér finnst hann bara vera meira svona “date dagur” og fólk fer náttúrlega alls ekki nógu oft á stefnumót.

Annars er ég bara að pæla, því mig langar að búa til valentínusarkort / merkimiða með sætum frösum en ég er kannski of amerísk í mér og enginn annar í svona stuði…

Ef þú ert hrifin af svona væmni og værir til í “ástarkort”, endilega kommentaðu með hugmynd af frasa eða orðatiltæki. Maður getur náttúrulega alltaf skrifað fallegt kort, ekki bara þann 14. febrúar!

Photoshop vol. 2

Í dag er almenningur mun meira fyrir ljósmyndun en áður tíðkaðist. Fólk er farið að kaupa sér flottari myndavélar og margir verið að fikra sig áfram í photoshop til að láta þær líta betur út. Sumum heppnast ágætlega, öðrum ekki. En þetta snýst náttúrulega bara um það að halda áfram að prufa sig áfram og leika sér.

Persónulega sé ég ekkert að því að fólk leiki sér að þessu, og jafnvel taki $ fyrir, en það er bara mín skoðun. Ég vildi gefa ykkur upp link á “50 photoshop artwork actions” en það er hægt að gera myndir einstakar á nokkrum sekúndum með einu klikki – Það er að segja, manneskjan sem bjó til þessar “actions” tók þær í raun upp og vistaði. Þið skiljið mig kannski ekki í þessum töluðu orðum, en ef þið náið í þennan pakka og prufið ykkur áfram, þá eigiði eftir að skemmta ykkur vel, því get ég lofað.

Margir vilja meina að þetta sé LETI að nota svona lagað, og ég væri sammála því ef að lærður ljósmyndari með stúdeó myndi nota þessar aðferðir, en fyrir ykkur hin sem að þykir gaman að prufa ykkur áfram, þá er þetta tilvalin leið.

Hér eru dæmi þar sem ég notaðist við þessar “actions”, en oftar en ekki breyti ég enn meira. Þetta eru hversdagsmyndir sem eru ekki stilltar upp né notuð ljós við…

 

Ef þú ert ekki vön/vanur að nota “actions” og hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að dúndra spurningu í komment.

♥ HAVE FUN ♥

pantone

Hversu falleg er þessi “mynd”  ?!

Sem minnir mig auðvitað á það að panta þessa bók á amazon..

Og svo má ekki gleyma lit ársins 2012 – TANGERINE TANGO:

bourgie lamp limited

Þessir 2 Bourgie lampar komu víst út fyrir jólin 2011 – Limited Edition…

Ég veit nú ekki alveg hvað mér þykir um þessa útgáfur – Hugsanlega fínt í litríkt barnaherbergi ?

Kartell lamparnir hafa tröllriðið Íslandi síðustu 2-3 ár og virðast ALLIR eiga 1 stk. Nei okei ekki allir, en mjög margir. Ég á 1 stk. sem ég er mjög ánægð með en hann er bleikur og var líka limited edition á sínum tíma – Einungis framleidd 10. þúsund eintök til styrktar brjóstakrabbameini.

Ég  er núna með hann frammi í stofu en það styttist í þann tíma sem hann fer inn til prinsessunnar. Ég held að ég fái mér pásu á bleika litnum í lífinu og leyfi henni að njóta hans.

diy barnaórói

OK, ég á 9 og hálfs mánaða gamla dóttur svo það er alveg óhætt að segja að ég hafi ekki alveg staðið mig í óróagerðinni hingað til. En klapp á bakið á mér fyrir að hafa klárað þetta áður en hún fermist.

Þetta var svakalega auðvelt, mun auðveldara en ég hélt…En þetta er nú líka bara basic órói svosum…

 

Verkefnið byrjaði svona..Ég fór fyrir nokkrum MÁNUÐUM út í skóg, fann greinar og spreyjaði hvítar, fann svo litlar þæfðar kúlur í Söstrene Grene og síðast en ekki síst fann þessar origami stjörnu í hönnunarbúð hér í Horsens.

Svo fékk ég auðvitað valkvíða með bandið..Svart eða hvítt, hvítt eða svart !?! Ég væri “safe” með að velja hvítt, en var æst í að setja svart band til að koma með smá mótvægi gegn öllu þessu hvíta..

Lokaniðurstaðan..Mér finnst þessi órói bara nokkuð sætur, þó ég segi sjálf frá. Pottþétt hægt að gera fallegri, en ég er mjög sátt með þessa útkomu. Og ég er auðvitað mjög stolt af sjálfri mér að vera búin að gera fyrsta “diy” verkefni ársins og það föstudaginn 13. janúar!

Næst á dagskrá er að gera nokkra póstera í herbergi krúttsprengjunnar, en þessi litapalletta mun einkenna þá einnig. Ég hugsa að ég komi henni Mínu Mús einhversstaðar fyrir en þó ekki í hefðbundnum stíl – SPENNANDI!

GÓÐA HELGI

P.S. Myndirnar eru teknar af instagram – Endilega fylgdu mér: aslaug2 – Ég er að reyna að taka myndir af einhverju öðru en dóttur minn en það er ótrúlega erfitt, enda er hún svona sæt:

by nord

Óhhh vörurnar frá BY NORD eru fallegar. Mjög fallegar…

Happy Friday…*dududuuuummmmm*…the 13th!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...